21október

Johnny vento

Jæja , blogg segiði. Jafnvel..


Já, 20 október í dag, Búinn að eiga afmæli, orðinn 17 ára gamall. Kominn með bílprófið en hvað haldiði? Ventoinn er bilaður! jafnvel ónýtur, greyið kallinn. Núna er það bara að biðja og vona það besta.

En Föður mínum lýst ekkert á það að ég fái hann þrátt fyrir það að það nái að bjarga greyinu, þannig að ég fæ hondu civic 98, gamla bílinn þeirra gömlu.. Keyrður um 700 þúsund kílómetra myndi ég giska á , en hann er víst eitthvað öruggari , örugglega fínn bíll .. .. RIP Johnny vento.

Jájá , en þannig er það nú að ég kom bara með flugi norður aftur, fæ vonandi bílinn norður eftir helgi , það yrði magnað :) .. Ekki mikið gagn í því að vera með bílpróf og engan bíl hmm ha hm ?

Vá, Djöfull er ég lélegur bloggari, nenniþessu ekki !



Kallurinn í Football Manager, Maður verður að fara að redda sér honum maður. Verður athyglisvert að geta keypt sjálfan sig!


Spurning hvort maður nenni að halda þessu bloggi áfram, Já ég veit , aumingi..




Ingvar

21. október 2006 klukkan 04:42
Ingvar Jónsson
11 athugasemdir
19október

Afmćli

Heyrðu ég á afmæli í dag! óskið mér nú til hamingju! Kem með blogg bráðalega, hehe , ég er að standa mig haaaaaaa? ...:)
19. október 2006 klukkan 02:55
Ingvar Jónsson
6 athugasemdir
08október

10,9,8,7,6,5,4,3,2,1 - Bílpróf

Já, eftir 10 daga verður kallurinn kominn með bílpróf og vá, lífið verður svo miklu þægilegra og betra og skemmtilegra býst ég við, eins gott að ventoinn verði svo í góðu standi!
En Lífið þessa dagana er í rólegri kantinum, fótboltaæfingarnar byrja um mánaðamótinn og, þannig núna er maður bara að reyna að lyfta og styrkja sig aðiens. Frekar rólegt í skólanum, fullt af hópverkefnum reyndar sem er ágætt. Reyndar stærðfræði próf á morgun sem ég erekkert alltof bjartsýnn fyrir en þá er það bara að læra vel fyrir það í dag..

Æi vá, dettur ekkert í hug til að segja ykkur, kemur eitthvað krassandi næst.. Hei! Heim næstu helgi, Team Lucy , lið sem ég og sölvi bjuggum til keppir í undankeppni MA í paintpall. Djööfull verður það gaman.. Svo tekur maður prófið á miðvikudeginum og ef ég næ því keyri í norður um kvöldið á glæsikerrunni..:)


Team Lucy: Ingvar, Sölvi, Palli, Jón Þór, Símon, Atli, Jón Viðar. 8 maður inn : Fúsi


Ingvar
08. október 2006 klukkan 17:43
Ingvar Jónsson
13 athugasemdir
01október

What you give out is what you receive


Hafiði spáð í þessu? Það sem þú gefur af þér er það sem þú færð til baka í lífinu. Einhvern veginn svona. Það er nefnilega heilmargt til í þessu. Þetta Kallast Karma, þið sem horfið á My name is Earl ættuð að kannast við þetta fyrirbæri. Ég trúi að einhverju leiti á þetta. Á hvað á maður að trúa? Trú er skrýtið fyrirbæri, allir í heiminum trúa á eitthvað, sama hvort það sé Kristni , Búdda, Karma eða bara sjálfan sig. Til heilmargt af þessu sem maður þyrfti kannski að kynna sér.
Ég veit eiginlega ekki alveg á hvað ég trúi. Ég trúi á Guð, eða ég held það. Veit samt ekki alveg hvort ég trúi öllu því sem stendur í biblíunni og því öllu. Ég hef alltaf trúað á það að ef maður geri eitthvað gott færðu eitthvað gott í staðinn. Nefni sem dæmi þegar ég sá Forrest Gump, þá snilldar mynd. Þá stendur Forrest alltaf við sín loforð og er góður við allt og alla. Og heppnin eltir hann, Hann endar sem moldríkur rækju kóngur einhverstaðar útí heimi. Þar vaknaði þessi hugsun nokkurnveginn hjá mér.
Svo að einhverju leiti trúi ég líka bara að mörgu leyti á sjálfan mig, en það er einhver þarna uppi sem fylgist með þessu öllu og stjórnar lífinu að einhverju leiti.

Já miklar pælingar í gangi, langaði bara að deila þessu með ykkur, hvað finnst ykkur?.

En er semsagt að spá í því að byrja að blogga aftur, spurning hvernig það gengur í þetta skiptið.
Hérna eru nokkrir punktar um það sem ég hef verið að gera undanfarið.
  • Sumarið var nokkuð skemmtilegt, þar sem versló stendur uppúr.
  • Fótboltalega séð gekk það upp og niður bara, Mfl upp í 1 deild. Sem er Geðveikt.
  • 2 flokki tókst ekki að komast í b deild, sorglegt.
  • Ég var að vinna í vallarhúsinu í allt sumar, mála völlinn, raka hann á fjórhjólinu, og gera allskyns dóterí inni, oft mjög þægileg og afslappandi vinna =), sérstaklega þegar HM var í gangi, maður horfði oft á leiki og fékk borgað fyrir það!
  • Núna er ég kominn aftur norður og í MA, Skólinn byrjar vel, lýst vel á bekkinn. Gaman að vera ekki busi.. Allt frábært bara..
  • 19 FKN dagar í bílprófið!!!!!!! Er að deyja úr spenningi, lífið á eftir að breytast alveg rosalega .. Vá verð að sýna ykkur kaggan sem kemur á götur landsins þann 18. október : Volkswagen vento 94´

Þessi er svipaður, aðeins nýrri kannski hehe. Sjáiði Kallurinn! :D

Frasar sumarsins: Heyyy wannnnna fight ? Hvað kallaðiru mig ? Hey ég er allveg gegt fínn gaur, verður bara að kynnast mér..By Bjarni Steinar. -

Maður sumarsins : Magni, þjóðin missti sig yfir þessu. Sem er snilld, þvílíkt gaman að fylgjast með þessu. Maður var bara fyrst " Neeee Magni í móti sól eitthvað þarna" þvííílíkt hallærislegt, svo bara fattaði maður hversu góður söngvari hann var , Maagnað..

Helgi sumarsins : Án efa Versló, ofur stuð á akureyri :)

Afrek sumarsins : hmm, náði nú ekki að afreka allt það sem ég ætlaði mér,þar á meðal spila landsleik, en mér tókst að spila minn fyrsta mfl leik í íslandsmótinu, það er góð byrjun. :>

Tónleikar sumarsins : Heyrðu ég fór á 2 svona alvöru tónleika í sumar, Sigurrós sem var þvílíkt og svo Bloodhounggang, sem var nokkuð gaman bara =) ...

Leikur sumarsins : Heyrðu eftirminnilegasti leikur sumarsins er Bikarleikurinn á móti KR. Svekkjandi að vinna ekki þar sem við vorum miklu betri ! svekkjandi 0-1 tap .. Djöfull var ég ánægður áðan að sjá Keflavík taka þá í bakaríið..


Heyrðu já ætla að segja þetta fínt í bili, kem með myndir af vistinni og herberginu og svona bráðlega. Svona aðeins til að sýna hvernig ég lifi þessa dagana..


Ingvar ..

01. október 2006 klukkan 05:21
Ingvar Jónsson
17 athugasemdir
23júlí

Pása

Jája þessi síða er komin í smá pásu í bili allavega.. bless´á meðan :)
23. júlí 2006 klukkan 22:06
Ingvar Jónsson
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Könnun

Hvernig finnst ţér ventoinn ?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Gagnasafn

Leikur dagsins

Leit